Skalmold

Skalmold - Valholl lyrics

rate me

<b>Valhöll</b> by <i>Skalmold</i><br />Hetja er fallin, höndin sár,

HöfuðIð klofið að strjúpa.

Gróa þar síðan Baldursbrár,

Berjalyng kroppar rjúpa.

Valkyrjur sækja vígamenn,

Völlurinn ataður blóðI.

Einherja mun þig Óðinn senn

útnefna, vinurinn góðI.

Hafinn á loft og traust er tak,

Tekinn án nokkurra refja.

bergmálar víða vopnaskak,

Við megum alls ekki tefja.

Sannað sig núna hefur hann,

Hetja og örlagavaldur.

Kveðjum við þennan mæta mann,

Maðurinn sá heitir Baldur.

Valkyrjur nú valinn kanna,

Velja menn til stórræðanna.

Okkar þannig Bifröst bíður,

Baldur hafri Þórs upp ríður.

Yfir sjáum heiðna hrafna,

Huginn, Muninn visku safna.

Heimdallur mun hliðin opna,

Höldum inn og beint til vopna.

Einherjar um völlinn vaða,

Valhöll, staður allra staða.

Miðgarður kveður, magnlaus þá

Mókaður um ég svamla.

Núna ég horfi niður á

Nautin við bæinn minn gamla.

Bærist þar líf við Bæjartjörn,

Balinn er umvafinn lyngi.

Leika sér þarna lítil börn,

Lífið, það gengur í hringi.

Að okkur nú goðin gæta,

Glaðir skulum kverkar væta.

Mært hvern annan mætir getum,

Mjöðinn drekkum kjötið etum.

Báðir tveir, jarl Gunnar, Grímur,

Glösin tæma, kveða rímur.

Búnir undir ragnarökin,

Rekum sverðin út um bökin.

Sárin gróa, sorgir bakka,

Sálin heil, ég Óðni þakka.

Thanks to sveppur for correcting these lyrics

Get this song at:  amazon.com  sheetmusicplus.com

Share your thoughts

0 Comments found