Skalmold

Skalmold - För lyrics

rate me

Haldið upp á heiðina með mér,

Höfuðin fjúka í nótt.

Guðirnir gefa okkur þrótt.

Guðirnir veita okkur þrótt til að sigra.

Vinir, ykkar vígamóðI her.

Veitir mér liðveislu í nótt.

Guðirnir gefa okkur þrótt.

Guðirnar veita okkur þrótt til að sigra.

Sver ég nú og sverðIð legg,

Svírann á og sundur hegg.

Jórinn þreyttur, ég er sár.

Jökullinn yfir gnæfir hár.

Blóðugur með brotna hönd

Berst ég einn um ókunn lönd.

Held ég enn í veika von,

Vígamaður Óðinsson.

Göngum móti glötun og dauða,

Gjótur þar bíða og fen.

þar geta tryllingsleg trén

Tekið þig niður og skellt þér á knén.

Nýtum daginn og nóttina rauða,

Neitum að ganga í fen.

Vörumst að taki' okkur trén.

Gegn Tý, Þór og Óðni við föllum á knén.

ófærur og dauðans dýr

Drepa þann sem burtu flýr.

Höldum áfram, heiðnir menn,

Himnaranir þeir falla senn.

Tölunni við týnum vrátt,

Tættir sundur smátt og smátt.

Held ég enn í veika von,

Vígamaður Óðinsson.

Frændur mínir, fóstbræður,

Fylgið mér um ófærur.

Deyi sá er deyja á,

Dugi sá er ætla má.

Held ég upp á heiðina,

Held ég verstu leiðina.

Held ég enn í veika von,

Vígamaður Óðinsson.

Get this song at:  amazon.com  sheetmusicplus.com

Share your thoughts

0 Comments found