Nydonsk

Nydonsk - Strákarnir Stofnuðu Hljómsveit lyrics

rate me

Sören, Palle, Knud og jeg stofnuðum hljómsveit.

Það var þykkni og þoka á Þykkvabæjaströndum á kvöldin.

Með páku og poka og þriggjahljómaþrígrip að þeysa

á kartöfluslóðir við sveitunga svera að keppa.

Í kapphlaupi við tímann og klukkuna á Hvoli við keyrðum.

Í leynimúla við lokkandi ljósamynstur.

:,: Splæst var á línuna sóda-poppi og pylsum :,:

Viðlag:

Strákarnir stofnuðu hljómsveit.

Þeir gengu bar' allt of langt.

Á leiðinni miðri mótormaskínan mæddist

Nú þykkbotna skó á brauðfætur fast voru bundnir.

Gengum hvar Göngu-Hrólfur hrasaði forðum

Og séra Þangbrandur þrumaði í krossfara kristnum orðum.

Viðlag...

Snögglega snældunni snérum við snarlega við

í fimbulfögrum fjallasal við sáum

Hvar Rúnar rösklega með rafmagnsgígjuna reið

Og beljandi bassinn og tromman frá Bárðadal bárust.

Viðlag...

Get this song at:  amazon.com  sheetmusicplus.com

Share your thoughts

0 Comments found