Nydonsk - Holur Innan Hausinn lyrics
rate meÞað er holur innan hausinn á mér nú,

þar sem heilinn áður var, nú ert þú.

Og það kemst bara ekkert annað fyrir,

Allt annað flýgur bara framhjá og yfir.

Þetta virðist vera ómæld fyrirhöfn,

ég hef alltaf átt bágt með að muna nöfn.

Nú er þitt það eina sem mér tekst að muna,

Allt annað óskiljanleg orðaruna.

Ég reyni að stafa mig framúr

Kemst ekki fram úr því.

Leit þig augun fyrsta sinnið,

áður enn ég missti minnið.

Vissi að ég gat hætt að leita,

Hvað skyldi nú daman heita?

Við spurningunni er aðeins eitt rétt svar

Sem birtist mér nú allsstaðar.

Það er holur innan hausinn á mér nú,

þar sem ég sjálfur áður var, nú ert þú

Sem hefur hugsun mína á þínu valdi,

þetta fór þá alveg eins og ég taldi,

það kemst bara einn fyrir

í höfðinu á mér í senn.

Leit þig augun fyrsta sinnið,

áður enn ég missti minnið.

Vissi að ég gat hætt að leita,

Hvað skyldi nú daman heita?

Við spurningunni er aðeins eitt rétt svar

Sem birtist mér nú allsstaðar.