Nydonsk

Nydonsk - Frelsið lyrics

rate me

Geng nakinn um húsakynnin

Býð nýjan dag velkominn,

Strýk framan úr mér mesta hárið.

Norðangarrinn feykir mér um kollinn á þér

Sem þú liggur á grúfu

Andar að þér flóru landsins.

Frelsið er yndislegt

ég geri það sem ég vil.

Skyldi maður verða leiður á því

Til lengdar að vera til?

Með nefið fullt af mold

Sem lyktar annars ágætlega.

Getur fólk átt erfitt með að tala?

Samt segir þú mér sællega

Frá öllu sem þér býr í brjósti

Liggur á bakinu og lætur tímann líða

Frelsið er yndislegt

ég geri það sem ég vil.

Skyldi maður verða leiður á því

Til lengdar að vera til?

Golan sveiflar gróðrinum

Næðir um,

Hárin risin, holdið bert

Það er gott að eiga kost á því

Að geta komist í náið samband

Við náttúrunnar leyndardóma

Frelsið er yndislegt

ég geri það sem ég vil.

Skyldi maður verða leiður á því

Til lengdar að vera til?

Get this song at:  amazon.com  sheetmusicplus.com

Share your thoughts

0 Comments found